laugardagur, 1. desember 2007

Til hamingju elsku afi okkar

Hann afi Haddi á afmæli í dag, því miður áttum við ekki mynd af afa með öllu tríóinu en þessi mynd af Steingerði og afa var tekin í ágúst sl. í bústað í Grímsnesinu. Til hamingju með afmælið elsku afi okkar kossar og knús frá tríóinu þínu í Hraunbænum ;o*
Fríða Katrín kom í smápössun til frænku , var nú ekkert alveg sátt svona þegar leið á , en frænka lagði hana bara í vagninn hennar Steingerðar og þar lúllaði hún í næstum 2.tíma :o)
Fríða Katrín að prófa göngugrindina sem við erum með í láni, eins og hún hafi aldrei gert annað en að rúnta um í svona græju. Algjör skvísa ;o)
sætustu litlu stelpurnar í heiminum
sætar frænkur að leika saman, misstöðugar þó. það er líka rúml. 3.mán á milli þeirra ;o)
algjör fjörkálfur
pabbi ég er tilbúin í jólainnkaupin
jæja ætli það sé ekki best að skella sér í jólagjafainnkaup
það borgar sig ekki að bíða með það endalaust ;o)

Engin ummæli: